11.11.1953
Sameinað þing: 15. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 360 í D-deild Alþingistíðinda. (3139)

48. mál, meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra

Gísli Jónsson:

Út af fullyrðingum hv. 1. landsk. (GÞG) vildi ég aðeins leyfa mér að benda á, að ég las hér upp áðan frv. til laga, sem hafði verið samþ. ágreiningslaust í Ed. til þess að koma þessum málum í það horf, sem hann ræðir um, og að hann og hv. 2. flm. héldu málinu í heilbr.- og félmn. í Nd. allan tímann og afgreiddu það ekki, vegna þess að þeir voru á móti málinu, svo að öll ummæli hv. þm. um þetta mál eru rangfærslur. (GÞG: Það var samkomulag stjórnarflokkanna.) Það var ekkert samkomulag.