02.12.1953
Sameinað þing: 20. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 362 í D-deild Alþingistíðinda. (3149)

68. mál, bátagjaldeyrislistinn

Flm. (Eggert Þorsteinsson):

Ég hafði óskað þess við umr. um þetta mál á síðasta fundi í Sþ., að málinu yrði vísað til fjvn. En því hefur verið skotið að mér síðan, að það muni vera réttara, að málið fari heldur til allshn., og er ég því fullkomlega samþykkur.