03.03.1954
Sameinað þing: 37. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 398 í D-deild Alþingistíðinda. (3207)

145. mál, Grænlandsmál

Jörundur Brynjólfsson:

Ég hef áður látið í ljós um eðli málsins,að það er í raun og veru utanríkismál, þó að vera kunni, að sitthvað mæli með, að hv. allshn. fengi það til meðferðar, og þar sem ég áður hafði látið í ljós, að hv. þm. gætu ákvarðað með atkvgr., til hvorrar n. málið fer, þá vil ég nú ekki grípa inn í þeirra dóm og greiði þess vegna ekki atkvæði.