22.10.1953
Sameinað þing: 10. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 465 í D-deild Alþingistíðinda. (3296)

39. mál, stóreignarskattur

fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Mig langar til þess að fá að koma hér að einni leiðréttingu varðandi svar, sem gefið var síðast þegar fyrirspurnir voru hér ræddar. Það var um innheimtu stóreignaskatts. Það var þá upplýst, að álagður skattur hefði verið rúmar 49 milljónir, en innheimtur skattur 42. Nú hafa starfsmenn þeir, sem þessi mál hafa með höndum, upplýst, að hér hafi orðið skekkja um uppgjöfina, þannig að innheimtar séu 44 rúmlega í staðinn fyrir 42 milljónir. — Þetta vildi ég hér með leyfa mér að upplýsa.