10.02.1954
Sameinað þing: 32. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 581 í D-deild Alþingistíðinda. (3434)

131. mál, álagningar á nauðsynjavörur

Viðskmrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Í sambandi við fsp. á þskj. 331 er rétt að taka það fram. að ríkisstj. hefur fengið loforð fyrir því, að álagning á nauðsynjavörur verði ekki hækkuð frá því, sem samið var um í des. 1952, og þá er rétt að taka það fram, ef einhverjir ekki vita um það, að þessi loforð hafa verið haldin.