05.10.1953
Neðri deild: 2. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 31 í B-deild Alþingistíðinda. (3524)

Kosning fastanefnda

forseti (SB):

Eins og hv. þm. er kunnugt, er listamerking flokkanna að þessu sinni nokkuð óvenjuleg, og niðurstaða kosningarinnar bendir til þess, að um einhvern misskilning hafi verið að ræða. Af því leiðir, að fram hefur komið ósk um það, að kosningin verði endurtekin, og tel ég, að það sé ekki ósanngjarnt.