05.10.1953
Neðri deild: 2. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 31 í B-deild Alþingistíðinda. (3525)
Kosning fastanefnda
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Það hefur oft komið fyrir, bæði í hv. Nd. og í Sþ., að við leynilegar kosningar í nefndir hafi atkvæði fallið öðruvísi en flokkatalan í þinginu hefur sagt til um. Það hefur hvað eftir annað komið fyrir, að einstakir menn úr flokkum hafa hjálpað öðrum flokkum eða einstökum persónum með því móti að kjósa með öðrum flokki heldur en þeir raunverulega tilheyra. Þetta hefur aldrei, svo lengi sem ég man til, þau 16 ár, sem ég hef verið á þingi, leitt til þess, að kosning hafi farið fram aftur. Og svo framarlega sem látin er fara fram leynileg kosning aftur, án þess að einhver þingmaður beinlínis beiðist þess, vegna þess að honum hafi orðið á mistök, þá álít ég, að það sé ekki rétt. Ég álít, að það sé ekki rétt, að hæstv. ríkisstj. reyni að beita slíku valdi gagnvart sínum fylgjendum, að hún láti kjósa aftur og aftur í þinginu, svo framarlega sem allir þm. hennar hlýða ekki kallinu.
Ég veit það, að hæstv. núverandi ráðherrar og hæstv. forsrh. man það vel, að það hefur komið fyrir áður hér í þinginu, að menn hafi kosið öðruvísi en flokkar þeirra segja til um. Það hefur ekki aðeins verið á einn veg, heldur á fleiri vegu, og hefur aldrei verið látin fara fram kosning aftur þess vegna. Hitt verð ég aftur á móti að viðurkenna, að ef einhver þm. ris upp og segir, að sér hafi orðið mistök á, þá gegnir nokkuð öðru máli fyrir forseta, en eftir kröfu ríkisstj. álít ég það alls ekki rétt. Ég vil mótmæla því, og ég vil eindregið skjóta því til hæstv. forseta að lofa við það sitja, sem nú hefur orðið.