27.10.1953
Efri deild: 10. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1715 í B-deild Alþingistíðinda. (3596)

Afgreiðsla mála úr nefndum

Hermann Jónasson:

Herra forseti. Það er út af þessari fyrirspurn. Við nm. höfum athugað þetta frv. sérstaklega, sem nú liggur fyrir um áfengismál, og það er ærið umfangsmikið, eins og við vitum, margar brtt., sem við höfum borið saman við frv., eins og það nú liggur fyrir. Því verður að sjálfsögðu hraðað að afgr. þetta mál, eftir því sem hægt er, en ég geri naumast ráð fyrir, að þeirri afgreiðslu geti orðið lokið fyrr en um eða undir miðjan næsta mánuð.