27.10.1953
Efri deild: 10. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1715 í B-deild Alþingistíðinda. (3597)

Afgreiðsla mála úr nefndum

Forseti (GíslJ):

Ég tek að sjálfsögðu til greina þær upplýsingar, sem komið hafa frá hv. þm. Str., vil hins vegar benda á, að mál þetta fékk mjög róttæka athugun á síðasta þingi hér í þessari hv. d. hjá hinni sömu n., og liggja öll þau gögn fyrir, og með því að málið er mjög umfangsmikið og hlýtur að taka mikinn tíma, væri æskilegt, að því yrði hraðað. Ég tek hins vegar að fullu gildar þær upplýsingar, sem ég hef fengið frá hv. þingmanni.