06.10.1953
Sameinað þing: 3. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1723 í B-deild Alþingistíðinda. (3624)

Rannsókn kjörbréfa - varamenn taka þingsæti

Frsm. (Gísli Guðmundsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur tekið til meðferðar kjörbréf Jóhanns Jósefssonar, hv. þm. Vestm. Nefndin hefur ekki fundið neitt við kjörbréfið að athuga og leggur til, að það verði samþykkt.