12.11.1953
Sameinað þing: 16. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1724 í B-deild Alþingistíðinda. (3631)

Rannsókn kjörbréfa - varamenn taka þingsæti

Frsm. (Lárus Jóhannesson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur athugað kjörbréf Björns F. Björnssonar sýslumanns sem varaþingmanns í Rangárvallasýslu, sem nú er ætlazt til að taki sæti á þingi í veikindaforföllum 2. þm. Rang. Engin kæra hefur borizt um kosninguna, og kjörbréfanefndin hefur ekkert við kjörbréfið að athuga. Hún leggur því til, að kosning hans verði tekin gild.