18.12.1953
Sameinað þing: 30. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1735 í B-deild Alþingistíðinda. (3668)

Þingfrestun og setning þings að nýju

Einar Olgeirsson:

Ég vil leyfa mér — og ég veit, að ég geri það fyrir hönd allra hv. þm. — að þakka hæstv. forseta fyrir góðar óskir í okkar garð. Ég vil um leið leyfa mér að þakka honum fyrir gott samstarf við okkur þm., það sem af er þessu þingi, og óska honum gleðilegra jóla og góðs nýárs og öllu hans fólki. Ég vil leyfa mér að óska honum góðrar ferðar heim og að við megum sjá hann hér aftur heilan, þegar við hittumst eftir nýárið. Og ég vil leyfa mér að biðja hv. þingmenn um að taka undir þessar óskir mínar til hæstv. forseta með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]