13.04.1954
Neðri deild: 95. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1737 í B-deild Alþingistíðinda. (3675)

Starfslok deilda

forseti (SB):

Þar sem þetta verður væntanlega síðasti fundur hv. þd. að þessu sinni, vil ég þakka hv. þdm. fyrir ánægjulega samvinnu við mig sem forseta á þessu þingi, sem sett hefur lög um fjölmörg merkileg og hagnýt framfaramál þessarar þjóðar. Vegna góðs skilnings hv. þdm., stjórnarandstæðinga sem stjórnarliða, hafa vinnubrögð deildarinnar oft getað verið greið og röskleg. Fyrir þetta þakka ég öllum hv. þdm.

Ég óska utanbæjarþingmönnum góðrar heimferðar og heimkomu og öllum hv. þdm. heilbrigði og allrar farsældar á komandi sumri. Vænti ég, að við hittumst allir heilir á nýju þingi á næsta hausti.