06.10.1953
Efri deild: 3. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 328 í B-deild Alþingistíðinda. (368)
7. mál, gjaldaviðauki
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Undanfarið hefur verið heimilt að innheimta þau gjöld, sem í frv. greinir, með þeim viðaukum, sem þar eru upp taldir. Með þessu frv. er farið fram á, að þessar viðaukaálögur verði framlengdar svo sem verið hefur. Ég leyfi mér að óska eftir; að frv. verði vísað til hv. fjhn. að lokinni umr.