04.12.1953
Efri deild: 28. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 43 í C-deild Alþingistíðinda. (3686)

18. mál, rithöfundaréttur og prentréttur

Forseti (GíslJ):

Út af því, sem hæstv. ráðh. sagði, vil ég aðeins taka það fram, að það hefur verið borin upp till. um að vísa málinu til menntmn. Hv. d. ræður því, hvort hún fellir þá till., en ég sé ekkert á móti því, að hv. menntmn. kalli til sín þann sérfræðing, sem hér hefur verið minnzt á, til þess að ræða við hann um málið, og af þeim ástæðum sé ég enga ástæðu til þess að vísa málinu í þá n., nema því aðeins að d. óski þess sérstaklega. Ég mun því fyrst bera upp þá till., sem kom fram fyrst hér.