15.12.1953
Sameinað þing: 26. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 569 í B-deild Alþingistíðinda. (466)

1. mál, fjárlög 1954

Forseti (JörB):

Þá er fyrstu ræðuumferð lokið. Nokkuð hafa hinir einstöku ræðumenn farið yfir tímann, sem ákveðinn var, en ég geri ráð fyrir, að ef ekki kemst jöfnuður á við næstu ræðuumferð, þá verði það jafnað til fulls við 3. umferðina, og þá getur enginn hv. ræðumaður farið yfir það, sem tilskilið er.

Hv. 11. landsk. þm., Lúðvík Jósefsson, tekur til máls og talar af hálfu Sósfl.