18.02.1954
Efri deild: 48. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 654 í B-deild Alþingistíðinda. (541)

115. mál, möskvastærð fiskineta

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Herra forseti. Í nál. frá sjútvn. varðandi þetta mál, sem birt er á þskj. 370, er lagt til, að frv. verði samþykkt eins og það liggur fyrir.

Ég þarf ekki að hafa hér um fleiri orð. Þessi viðbúnaður að lögfesta samninginn er nú ekki fyrr á ferðinni en vænta mátti, þar sem samningurinn var gerður í apríl árið 1946, en mér er nú kunnugt um það raunar, að það er ekki bara Ísland eitt, sem hefur verið seint á ferðinni með samþykkt hans. Það hefur verið svo hjá fleirum, þó að ýmis lönd, sem að honum standa, hafi samt lokið við lögtöku hans á undan okkur.