24.11.1953
Neðri deild: 28. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 661 í B-deild Alþingistíðinda. (569)

105. mál, ríkisreikningar

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Þetta frv. um samþykkt á ríkisreikningnum fyrir árið 1951 er samið í sama formi og vant er. Reikningurinn hefur verið lagður fyrir samtímis frv., og leyfi ég mér að vísa til hans. Ég sé ekki ástæðu til þess að fylgja frv. úr hlaði með frekari grg., en legg til, að því verði vísað til hv. fjhn. að lokinni umr.