23.03.1954
Efri deild: 66. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 694 í B-deild Alþingistíðinda. (605)
139. mál, lögreglustjóri á Keflavíkurflugvelli
Utanrrh. (Kristinn Guðmundsson):
Herra forseti. Ég vil með nokkrum orðum svara fyrirspurn hv. þm. V-Sk. (JK), þar sem hann gerði fyrirspurn um, hvort hugsað væri að hafa svipað fyrirkomulag þar, sem radarstöðvarnar eru. Ég get svarað því nú í bili, að það er ekki gert ráð fyrir því, að settir verði þar lögreglustjórar, enda býst ég ekki við, að það verði það margir menn á hverri stöð, að það taki því. Hins vegar kemur það til álita og er sjálfsagt, ef þess reynist þörf, að gefinn verði kostur á aukinni löggæzlu á þeim stöðum, þar sem radarstöðvarnar verða reistar. Eftir frv. þessu, sem fyrir liggur, þá er einungis gert ráð fyrir, að umdæmi lögreglustjórans á Keflavíkurflugvelli miðist við, eins og það er orðað hér, „samningssvæði þau á Reykjanesi, sem varnarsamningur Íslands og Bandaríkjanna frá 5. maí 1951 tekur til og eru eign ríkisins.“
Ég tel engan vafa á því, ef koma fram óskir frá sýslumönnum, hreppsstjórum eða þeim héruðum, þar sem radarstöðvarnar verða reistar, um aukna löggæzlu, þá verði orðið við þeim.