23.03.1954
Efri deild: 66. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 739 í B-deild Alþingistíðinda. (675)

167. mál, tollskrá o. fl.

Lárus Jóhannesson:

Herra forseti. Ég hef borið hér fram brtt. á þskj. 514, og er hún varðandi inniskó og gúmmískó, sem bæði eru innfluttir og einnig búnir til hér á landi. Till. þessi er flutt eftir beiðni viðskmrh., og hefur orðið samkomulagsatriði milli hans og fjmrh. og einnig milli þeirra, sem standa að innflutningi þessa skófatnaðar og framleiða hann hér á landi. Vona ég því, að hún verði samþ. í deildinni.