20.10.1953
Efri deild: 6. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 55 í B-deild Alþingistíðinda. (72)

60. mál, stofnun happdrættis

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Þetta frv. er flutt eftir tilmælum stjórnar happdrættis Háskóla Íslands, og eru ástæður færðar fram í grg., sem frv. fylgir. Sé ég ekki ástæðu til þess að endurtaka það, sem grg. segir um þetta mál. Leyfi ég mér að vísa til þess og óska eftir, að frv. verði vísað til hv. fjhn. að lokinni þessari umræðu.