05.04.1954
Efri deild: 77. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 842 í B-deild Alþingistíðinda. (859)

124. mál, fuglaveiðar og fuglafriðun

Frsm. (Ingólfur Flygenring):

Út af þessari brtt., sem flutt er af hv. þm. S-Þ., þá var hún ekki komin fram, þegar við héldum nefndarfundinn, en á fundinum var mættur dr. Finnur Guðmundsson, og fór hann í gegnum frv. með okkur. Ég er ekki bær um að greiða atkv. um nú þegar, hvort þetta sé bót eða ekki á frv., ég býst við, að a.m.k. sumt sé heppilegt í því, — og ég vildi gjarnan fá að athuga þetta til 3. umr.