26.04.1955
Neðri deild: 78. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1095 í B-deild Alþingistíðinda. (1243)

183. mál, húsnæðismál

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Þar eð það kemur fram í grg. þessa frv., að byggingarsjóði sveitanna hefur verið tryggð ákveðin fjárupphæð af því fé, sem frv. fjallar um, og fjárupphæðin meira að segja nefnd í grg., tel ég óverjandi að afgreiða þetta frv. öðruvísi en þannig, að byggingarsjóði verkamanna verði tryggð a.m.k. jafnhá upphæð, og segi þess vegna já.