24.02.1955
Efri deild: 51. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1157 í B-deild Alþingistíðinda. (1415)
92. mál, ættaróðal og erfðaábúð
Frsm. (Jón Kjartansson):
Herra forseti. Út af þessari aths. hæstv. dómsmrh. vil ég geta þess, að þetta er alveg rétt, sem hann bendir á, að það getur orðið árekstur hér og hann gæti orðið dálítið leiðinlegur. Eins og fram kemur í 1. gr. frv., sem liggur fyrir, þá var aðalætlunin sú að tryggja þeim börnum, sem vinna að staðaldri á býlunum, réttinn í staðinn fyrir eldri börnunum. En það getur vel verið ástæða til að íhuga þetta atriði betur, sem hæstv. ráðh. bendir á. Vil ég mælast til þess, að málið verði tekið út af dagskrá núna og n. athugi það betur.