21.02.1955
Neðri deild: 50. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1186 í B-deild Alþingistíðinda. (1509)

129. mál, Brunabótafélag Íslands

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég hef veitt því athygli, að hv. 3. þm. Reykv., frsm. allshn. í þessu máli, hefur víkið af fundinum, en ég vildi gjarnan fá tækifæri til að bera fram við hann eina spurningu út af málinu. Ég vil því mælast til við hæstv. forseta, ef hv. 3. þm. Reykv. er alveg vikinn af fundi, að umr. verði ekki slítið nú, heldur frestað, þannig að mér gefist tækifæri til að bera fram þessa fyrirspurn, áður en 2. umr. verður lokið.