18.02.1955
Neðri deild: 49. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1262 í B-deild Alþingistíðinda. (1634)

127. mál, leigubifreiðar í kaupstöðum

Forseti (SB):

Varðandi ósk hv. 2. þm. Reykv. um að fresta umr. nú vil ég aðeins endurtaka það, sem ég áður sagði úr ræðustól f.h. nefndarinnar, að ég tel eðlilegt að koma þar til móts við óskir hv. þingmanna í þessu efni, að umr. verði nú lokið, en atkvgr. um málið frestað, þannig að hv. þm. hafi hinar skriflegu brtt. prentaðar fyrir sér. Ég vil geta þess, að frá því að 2. umr. fór fram um málið eru liðnir fjórir dagar, þannig að hv. þm. hefur gefizt mjög gott tóm til þess að athuga þetta mál.