04.04.1955
Neðri deild: 69. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1373 í B-deild Alþingistíðinda. (1763)
178. mál, bæjarstjórn í Kópavogskaupstað
Forseti (SB):
Af tilefni þessara orða hv. 3. landsk. vil ég upplýsa, að það er í samráði við flm., að málið er tekið fyrir nú. Forseti hefur að sjálfsögðu ekki vald til þess að knýja hvorki hv. þm. né hæstv. ráðherra til þess að vera viðstadda.