20.04.1955
Neðri deild: 75. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1488 í B-deild Alþingistíðinda. (1782)

178. mál, bæjarstjórn í Kópavogskaupstað

Forseti (SB) :

Það verður orðið við ósk hv. þm. um það að bera till. upp. En hún er þá ekki lengur till. um að fresta umr., heldur um að fresta atkvgr.

Verður þá þessi till. frá hv. 3. landsk. þm. (HV), sem er í nál. á þskj. 595 og er um að fresta umr. um málið, nú borin upp sem till. um það að fresta atkvgr. um málið.