03.12.1954
Efri deild: 25. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 73 í B-deild Alþingistíðinda. (187)
12. mál, yfirstjórn mála á varnarsvæðunum o. fl.
Frsm. (Hermann Jónasson):
Herra forseti. Þetta frv., sem liggur hér fyrir, er brbl. frá s.l. sumri. Ástæðan til þess, að þessi brbl. voru sett, mun vera sú, að hæstiréttur taldi forsetaúrskurð um skiptingu starfa milli ráðherra ekki hafa næga stoð í lögum, að svo miklu leyti sem tilteknum flokki mála, eins og dómsmálum o.fl., væri skipt milli ráðherranna, eins og hafði verið gert með forsetaúrskurðinum. Rétturinn taldi, að slíkur úrskurður yrði að hvíla á löggjöf frá Alþingi. Þetta frv., sem hér liggur fyrir og er brbl. frá s.l. sumri, eins og ég sagði áðan, á að bæta úr þessum ágöllum.
Nefndin er sammála um að leggja til, að frv. verði samþ. Einn nm. tók ekki þátt í afgreiðslu málsins.