18.11.1954
Efri deild: 19. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 80 í B-deild Alþingistíðinda. (206)

12. mál, yfirstjórn mála á varnarsvæðunum o. fl.

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Þetta frv. er komið frá hv. Nd. og var afgr. óbreytt þar í deildinni. Frv. fjallar um að framlengja söluskattinn fyrir næsta ár. Í sambandi við 1. umr. fjárlagafrv. gerði ég grein fyrir fjármálum ríkisins almennt og horfum á næstunni, eftir því sem unnt er að sjá. Leyfi ég mér að vísa til þeirrar skýrslu um nauðsyn þess að framlengja skattinn.

Ég vil óska þess, að frv. verði vísað til hv. fjhn. deildarinnar að lokinni þessari 1. umr.