18.10.1954
Neðri deild: 5. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 75 í C-deild Alþingistíðinda. (2070)
32. mál, brotajárn
Forsrh. (Ólafur Thors):
Herra forseti. Það er aðeins örstutt athugasemd. — Eins og hv. 1. flm. hv. 8. þm. Reykv., gat um, er hér farið fram á heimild ríkisstj. til handa til að banna útflutning úr landi á brotajárni og járnskipum, sem ætluð eru til niðurrifs. Ég vil út af þessu aðeins upplýsa, að ríkisstj. hefur að óbreyttum lögum, ef ég veit rétt, heimild til að banna útflutning á skipum. Jafnframt vil ég skýra frá því, að einmitt nú hefur ríkisstj. borizt beiðni um að heimila útflutning á nokkrum gömlum togurum, sem hér hafa legið árum saman aðgerðarlausir og stöðugt hlaðið á sig nokkrum kostnaði, en þó farið jafnframt lækkandi í verði. Ég veit ekki, hvort ríkisstj. mun telja sér fært að banna slíkan útflutning, þó að slíkt frv. hafi verið lagt fram, en vildi aðeins tjá hv. flm. og einnig þeirri n., sem um málið á að fjalla, að í bili standa mál, eins og ég hef skýrt frá, þannig, að sótt er um leyfi til sölu úr landi á þessum gömlu skipum, sem árum saman hafa legið aðgerðarlaus.