11.03.1955
Neðri deild: 58. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 240 í C-deild Alþingistíðinda. (2223)

155. mál, lækkun verðlags

Forseti (SB):

Eins og hv. þingmönnum er kunnugt, þá var þeim tilmælum fyrir skömmu beint til allra hv. nefnda þingdeildarinnar að afgreiða þau mál, sem til þeirra hefur verið vísað. Forseti hefur að sjálfsögðu ekki vald til þess að knýja nefndir til þess að skila áliti um mál, sem þær vilja ekki taka afstöðu til. En ég vil aðeins af tilefni þeirrar óskar, sem kom fram frá hv. 8. landsk. þm., ítreka tilmæli mín til hv. nefnda þingdeildarinnar yfirleitt að skila áliti um þau mál, sem til þeirra hefur verið vísað.