17.11.1954
Sameinað þing: 15. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 5 í D-deild Alþingistíðinda. (2387)

65. mál, sjúkraflugvélar

Frsm. (Eiríkur Þorsteinsson):

Herra forseti. Till. til þál. um lendingarstaði fyrir sjúkraflugvélar hefur verið rædd í allshn., og hefur n. komizt að einróma niðurstöðu og er sammála um að mæla með afgreiðslu hennar í hv. Alþingi.

Ég vísa til till. sjálfrar á þskj. 84 og grg. fyrir henni og nál. á þskj. 161.