16.12.1954
Sameinað þing: 29. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 150 í D-deild Alþingistíðinda. (2475)

118. mál, Norður-Atlantshafssamningurinn

Hermann Jónsson:

Herra forseti. Þar sem meiri hl. Alþ. hefur fellt brtt. okkar þjóðvarnarmanna um frestun þessa máls, meðan gerð væri tilraun til að losa okkur Íslendinga úr Atlantshafsbandalaginu, og enn fremur fellt aðrar frestunartill., sem fram hafa komið í málinu, en ríkisstj. er staðráðin í því að knýja fram úrslit þess nú þegar, mótmæli ég þeirri málsmeðferð og segi nei.