13.04.1955
Sameinað þing: 51. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 281 í D-deild Alþingistíðinda. (2634)

98. mál, Geysir

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Ég er ekki reiðubúinn að svara þessari fsp., en mér virðist þær upplýsingar, sem hv. þm. Barð. gefur, benda til þess, að það sé á misskilningi byggt, sem hv. 1. flm. sagði hér og hafði eftir Geysisnefndinni, að hún hefði ekki yfir nægu fé að ráða, svo að mér virðist allt hníga að því, að málið þurfi betri athugun, og styð þá till. hv. þm. Borgf., að málið verði tekið út af dagskrá.