04.05.1955
Sameinað þing: 56. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 289 í D-deild Alþingistíðinda. (2651)

168. mál, öryggi í heilbrigðismálum

Frsm. (Sigurður Ágústsson):

Herra forseti. Á þskj. 435 höfum við þrír alþm., hv. þm. Barð. (GíslJ), hv. þm. N-Ísf. (SB) og ég, flutt till. til þál. um aukið öryggi í heilbrigðismálum. Ýtarleg grg. fylgir till., og auk þess flutti hv. þm. Barð. ýtarlega framsögu, er till. var til fyrri umr.

Allshn. hefur rætt till. á þremur fundum sínum og mælir samhljóða með samþykkt hennar á þskj. 707. Tveir nm., hv. 5. þm. Reykv. (JóhH) og hv. 5. landsk. (EmJ), voru fjarverandi, er n. afgreiddi málið á fundi sínum 30. fyrra mánaðar.