10.05.1955
Sameinað þing: 58. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 293 í D-deild Alþingistíðinda. (2664)
200. mál, leit að fiskimiðum fyrir Norðurlandi og Austfjörðum
Flm. (Vilhjálmur Hjálmarsson):
Herra forseti. Það er skoðun flm. þessarar þáltill., að brýn nauðsyn sé að hefjast þegar handa um þau verkefni, sem till. fjallar um. Sjóþorpin á Austur- og Norðurlandi hafa flest dágóða aðstöðu til fiskverkunar, en hráefnaskorturinn háir mjög starfsemi fiskiðjuveranna og veldur því, að atvinna manna í þessum þorpum er ákaflega stopul. Togarar geta nokkuð bætt úr þessu, en það hefur háð mjög þeirri úrlausn, að flest togaramið liggja fjarri þessum landshlutum. Árangur af skyndileitum, sem gerðar hafa verið fyrir skömmu, bendir til þess, að finna megi fleiri togaramið nær Austur- og Norðurlandi en áður hafa þekkzt.
Við flm. teljum sem sagt, að það sé mesta nauðsynjamál að hefjast þegar handa um þessa leit og það á myndarlegan hátt. Nú er liðið fast að þinglokum, og ég vil þess vegna ekki tefja tímann með að setja á langar ræður um þetta atriði, en leyfi mér að vísa til þeirrar grg., sem þáltill. fylgdi.
Ég legg svo til, að till. verði vísað til síðari umr. að þessari lokinni.