11.05.1955
Sameinað þing: 59. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 296 í D-deild Alþingistíðinda. (2668)

200. mál, leit að fiskimiðum fyrir Norðurlandi og Austfjörðum

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Ég vil benda á það í þessu sambandi, að fyrirhugað er að láta fara fram leit að fiskimiðum, en fjárveitingin í því efni er aðeins 250 þús. kr., og það er náttúrlega ekki vafi á því, að það þarf að hafa ráð á meira fé, til þess að leit fari fram svo sem nauðsynlegt er. Þess vegna tel ég mjög hyggilegt að samþykkja þessa till., sem heimilar fé í þessu skyni til viðbótar.