11.05.1955
Sameinað þing: 59. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 296 í D-deild Alþingistíðinda. (2669)

200. mál, leit að fiskimiðum fyrir Norðurlandi og Austfjörðum

Forsrh. (Ólafur Thors):

Ég vildi mega undirstrika það, sem hæstv. fjmrh. sagði, að ég skoða þá, að ég eigi von á meiri peningum frá honum til þess að leita að fiskimiðum, ef till. verður samþ., og þá hefur hún að því leyti þau áhrif, að hann fær þá að borga einn viðbótarreikning frá mér. En ég hugsa nú, svo að maður segi ekki meira en maður meinar, að mér hefði tekizt að öngla út úr honum til minna þarfa án þessarar þáltill.