04.05.1955
Sameinað þing: 56. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 508 í D-deild Alþingistíðinda. (2810)

76. mál, frjáls innflutningur bifreiða

Jóhann Hafstein:

Herra forseti. Þó að afgreiðsla þessa máls hafi að vísu mjög dregizt að undanförnu, vildi ég mega mælast til þess við hæstv. forseta, að umr. verði enn frestað og málið tekið út af dagskrá. Geri ég það að vísu í fullu trausti þess, að við eigum enn eftir að hafa fundi hér í Sþ., þó að mjög sé nú liðið að þinglokum.