04.05.1955
Sameinað þing: 56. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 621 í D-deild Alþingistíðinda. (2950)

175. mál, óháðir alþýðuskólar

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Mér skildist á síðustu umræðum, að það vantaði hér allmargar upplýsingar um þetta atriði og að hæstv. ráðh. treysti sér tæplega til þess að taka við till. eins og hún er, svo að ég vildi mega leggja til, að málinu yrði vísað til ríkisstj. á þessu stigi, og geri ég það að till. minni.