02.12.1954
Sameinað þing: 21. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 676 í D-deild Alþingistíðinda. (3040)

211. mál, jöfn laun karla og kvenna

Fyrirspyrjandi (Kristín Sigurðardóttir):

Ég þakka hæstv. ráðherra greið svör, og ég harma það, að ekki hefur verið hægt að gera meira til framkvæmda málsins. Ég vænti þess hins vegar, að hið bráðasta verði gerðar þær ráðstafanir, sem nauðsynlegar eru, svo að samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunarinnar geti komizt í framkvæmd. Ég hef litið svo á, að ein af þeim ráðstöfunum væri einmitt að koma á þessu samkomulagi meðal atvinnuveitenda og vinnuþega.