28.03.1955
Neðri deild: 66. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 2033 í B-deild Alþingistíðinda. (3242)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.

Forsett (SB):

Ég vil vekja athygli hv. þm. á því, að þau mál, sem hér hafa verið rædd, eru ekki á dagskrá hv. þingdeildar í dag. Þó að einstökum þdm. sé gefið tækifæri til þess að beina stuttum fyrirspurnum til einstakra ráðherra, þá þýðir það að sjálfsögðu ekki, að allir hv. þm. eða fjöldi hv. þm. geti tekið sig til og haldið uppi umræðum allan fundartímann. — Hv. 8. landsk. gerir örstutta athugasemd og verður síðastur ræðumanna við þessar umræður.