02.12.1954
Sameinað þing: 21. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 2057 í B-deild Alþingistíðinda. (3268)

Varamenn taka þingsæti

Frsm. (Gísli Guðmundsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur haft til athugunar kjörbréf Hermanns Jónssonar skrifstofustjóra í Reykjavík, sem hlotið hefur varauppbótarþingsæti Þjóðvarnarflokksins. Nefndin hefur ekki fundið neitt athugavert við kjörbréfið og leggur til, að það verði tekið gilt.