18.12.1954
Sameinað þing: 31. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 2070 í B-deild Alþingistíðinda. (3318)

Þingfrestun og setning þings að nýju

Forseti (JörB):

Samkvæmt því, er hæstv. forsrh. hefur nú tilkynnt, er þetta síðasti fundur Alþingis á þessu ári.

Ég vil þakka hv. þm. fyrir einkar gott samstarf og hvað þeir hafa lagt sig fram um að gera mér auðveld störfin sem forseta þingsins. Ég vil óska hv. þm. gleðilegra jóla og hamingjusams nýárs. Utanbæjarþingmönnum óska ég góðrar ferðar heim til sín og góðrar heimkomu. Megum allir hittast heilir eftir nýárið, þegar fundir hefjast á ný. Starfsfólki þingsins óska ég gleðilegra jóla og góðs nýárs.