04.02.1955
Sameinað þing: 32. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 2071 í B-deild Alþingistíðinda. (3321)

Þingfrestun og setning þings að nýju

forsrh. (Ólafur Thors):

Herra forseti. Hinn 24. f. m. gaf forseti Íslands út svo hljóðandi bréf: „Forseti Íslands gerir kunnugt:

Ég hef ákveðið samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi, 74. löggjafarþing, skuli koma saman til framhaldsfunda föstudaginn 4. febr. 1955, kl. 13.30.

Gert í Reykjavík, 24. jan. 1955.

Ásgeir Ásgeirsson.

Ólafur Thors.

Forsetabréf um, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.“

Samkvæmt þessu hefjast nú framhaldsfundir Alþingis, 74. löggjafarþings.