04.02.1955
Sameinað þing: 32. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 2071 í B-deild Alþingistíðinda. (3322)

Þingfrestun og setning þings að nýju

Forseti (JörB):

Samkvæmt því, er hæstv. forsrh. hefur nú tilkynnt, hefjast fundir í Alþingi að nýju.

Ég vil leyfa mér að óska öllum hv. þingmönnum góðs og gleðilegs árs og þakka liðna árið. Sömuleiðis óska ég starfsfólki þingsins góðs og gleðilegs árs.