14.03.1955
Neðri deild: 59. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 715 í B-deild Alþingistíðinda. (887)

94. mál, iðnskólar

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég vil aðeins með tilliti til þeirra umræðna, sem fram hafa farið, og þeirra till., sem nú liggja fyrir, lýsa fylgi mínu við brtt., sem þrír hv. þm. flytja á þskj. 415. Og með tilliti til þess, að ég álít þær till. ganga það langt í að fullnægja þeirri stefnu, sem ég álit heppilegasta í þessum efnum, þá vil ég um leið leyfa mér að taka mínar till. á þskj. 382 og 389 til baka, en mun fylgja brtt. á þskj. 415.