14.12.1955
Neðri deild: 33. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1030 í B-deild Alþingistíðinda. (1001)

122. mál, almannatryggingar

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Það, sem ég sagði, sagði ég vegna þess, að ég sá ekki betur en hæstv. forseti talaði ávítunarorð sín ofan í höfuð mér og hæstv. viðskmrh., Ingólfi Jónssyni. Það var þess vegna, sem ég sagði þetta. Mér sýndist hann beina máli sínu alveg að okkur og tala þetta ofan í okkar höfuð, eins og ég segi.