10.02.1956
Neðri deild: 66. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1204 í B-deild Alþingistíðinda. (1240)
105. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins
Eggert Þorsteinsson:
Herra forseti. Ég lít svo á, að frv. þetta, sem hér er greitt atkv. um nú, sé ekki síður hagsmunamál neytendanna en framleiðendanna, og frv. geti því valdið óþörfum deilum um mál, sem virðist vera mjög viðkvæmt mál þessara aðila beggja, og segi því já við frávísunartillögunni.